Aldís ;**(L)
04.04.2007 19:04:30 / smokkfiskur

Byrja að blogga aftur ?

Góðan Daginn !

 Ég hef ekki hugmynd af hverju mér datt í hug að blogga ? ;/ líklega af því mér leiðist. Er stödd í Borginni hjá honum Tómasi mínum, það er mjög fínt nema hann er bara að vinna og meira að segja vinna lengur í dag.. tíbíst af því ég hafði ekki séð hann í þrjár vikur áður en ég kom suður. Een ég lifi þetta nú af ;D Fór bara með Heiðdísi Ósk frænku minni í Kringluna í dag, æjj hún er svo æðisleg að nenna að dragast svona á eftir mér;*, en ég náði að versla mér brjóstarhaldara og brók.

Hvað á maður að skrifa í svona blogg ? man þetta ekki lengur.

Allavega það sem er að frétta af mér er að skólinn gengur bara vel fyrir utaf íþróttafræði og ensku, vonandi að ég nái bara. Svo er ég hætt að æfa fótbolta fyrir smá löngu og ætla að fara að vinna á Hótel Geysi í sumar kannski með Gylfa og Guddu ;D það verður mjöög gaman vonandi, svo flyt ég bara suður ;o það verður æðislegt!   fyrir utan að öll fjölskyldan verður á Akureyri, en það er hægt að fara að heimsækja hana. Þá ætla ég líka að byrja í fótboltanum aftur vonandi.
Hvaða félagi á ég þá að æfa með ??
Er svona að spá mest í Fylki, en þarf samt smá hjálp með þetta!

Ég og Guðrún erum með gott plan fyrir sumarið, ætlum að koma okkur í geðveikt form, fara út að hjóla og hlaupa, lyfta og allt svoleiðis svo það sé nú hægt að byrja í fótboltanum aftur ef sú þrá verður enþá. En allavega er planið að koma sér í form;D

Ég held að ég ætli ekki að hafa þetta lengra. Ég kannski reyni að skella inn einhverjum myndum og einhverju ef mér leiðist rosalega.. Endilega látið mig vita ef þið viljið að ég haldi áfram með síðuna, ég allavega kannski læt í mér heyra þegar ég er flutt svo fólk viti að ég er ekki dáin ?

EITT AÐ LOKUM, TOMMI VAR SVO ÆÐISLEGUR AÐ BJÓÐA MÉR Á X-FACTOR ÞANNIG AÐ ÉG ER AРFARA Á X-FACTOR Á FÖSTUDAGINN ;D;D ohh það verður GEÐVEIKT! ;*

een Aldís kveður ;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 17:15:25 / smokkfiskur

VMA!?

Þá er maður bara byrjaður í VMA. Það er held ég bara ágætt nema svolítið erfitt að rata! það kemur. En geðveikt gaman að hitta alla krakkana og svona, maður hefur ekki hitt neinn í sumar alltaf að vinna bara.Vonandi að það verði bara ekki svona vesen þar eins og er alltaf í grunnskólafólki, vonandi að allir geti bara verið vinir án þess að það verði einhver leiðindi! Held að maður ætti að vera orðinn það þroskaður á þessum aldri. Allavega er það mín skoðun ;/ veit ekki með ykkur.

Ég var svona að spá í að reyna að halda þessari síðu svona e-d gangandi kannski svona allavega stundum og stundum þegar ég nenni. Og ef þið viljið ? Ég á alveg helling af myndum sem ég þarf að setja herna held ég, ef ég nenni og ef ég finn mér einhverja fljótlega og þægilega myndasíðu, ef þið vitið um einhverja endilega látið mig vita? nenni ek einhverju endalausu brasi við þetta. ;/ Svo koma örugglega myndir úr skólanum og svona, ætli maður reyni ekki að vera með myndavél í busuninni allavega ;o.. úff það er kvíði fyrir henni! vonandi að hún verði samt bara skemmtileg og ekki e-d rugl með vaselín í hárið og e-d svoleiðis. Hef bara ekki mikið meira að segja ætla að fara í litun og klippingu nuna og svo klára að taka til í herberginu minu, skipta á rúminu riksuga og skúra;D mm elska svoleiðis herbergi æði að sofa þar!

frábært ;*

» 13 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 13:36:54 / smokkfiskur

heima !

Góðan daginn !

Komin heim frá spáni og er ennþá bara jafn hvít og áður en ég fór út, en Tommi er svertingi eftir þessa ferð ! svekkjandi það. En só ég fór ek til að verða brún þó það fylgi nú með heldur til að hafa gaman. Það tókst nú bara ágætlega held ég. Fórum í tívolí, vatnsrennibrautagarð, dýragarða tvo, að versla og á ströndina. Reyndar fórum við bara einu sinni á ströndina, hefði alveg verið fínt að geta farið oftar en ströndin var bara það langt frá okkur að við nenntum ek að labba þangað. Ég og Tommi skelltum okkur á Jet Ski á ströndinni og það var bara æðislega gaman ;D. Svo vorum við aðalega bara að dúlla okkur e-d. Vildi bara koma með smá kveðju, fer heim á eftir með Didda frænda. Og byrja bara að vinna á morgun. ;/ Segjum þetta gott í bili endilega kvittið.

Gracias ;*


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 23:15:04 / smokkfiskur

2.júní

Langar að segja smá frá einhverju herna. Langt síðan ég bloggaði !

Síðustu dagar hafa verið strembnir sko. Síðasta laugardag var farin ferð suður að keppa, mætin í hamar átta og lagt af stað keppt á lau og sun. Ömurlegir leikir. Keyrt heim á sun og farið aftur suður á mánudeginum í skólaferðalag. Fórum í rafting, paintball, gogart, adrenalíngarðinn, út að borða á Argentina steikhás og gist á hótel örk svo e-d sé nefnt. Þessi ferð var alveg ágæt fannst mér. Hefði alveg mátt vera betri skoo;/. Maður var allavega kominn með svolítið mikla heimþrá þarna og það gerist ek oft að ég fái heimþrá. Jæja, komum heim í gærkvöldi og svo var bara útskriftin í kvöld. Mjög fint. Aldrei grunnskóli framar ! Fékk finar einkunnir bara, hefðu mátt vera betri samt sumar sérstaklega samræmdu. En ég náði þó öllu :D það skiptir mestu ?

Svo er ég að spá í að næstum því flytja suður í júní þangað til ég fer út. Er orðin leið á að hanga herna á Akureyri og horfa út í loftið alla daga. En kem þá allavega norður að keppa ?! nema að ég slútti bara ? æjj ég veit ek ? get ek ákveðið mig ;/ þjálfi bannar mér að hætta, og ég tími því ek en samt langar mig það. Of flókið sístem. En allavega verða ég mest í rvk í júní útaf ég byrja ek að vinna firr en í júlí. Ooookeeei.

Hef svo ekki neitt að segja ;/ myndirnar úr ferðinni koma einhverntimann þegar ég læri að gera mér nýja myndasíðu. Þetta picturetrail hefur ek reinst gott.

bless


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 20:19:54 / smokkfiskur

20.maí

Tuttugusti maí og ég er bara í afmælisveistu hjá Þórunni systir minni. Hún átti afmæli í gær og þess vegna ætla ég að tileinka henni þetta blogg ;*

Innilega til hamingju með daginn í gær Þórunn min ;* tuttuguogþriggja ára stór stelpa bara !
Vona að þu hafir verið ánægð með afmælisgjöfina frá okkur, ég get því miður ek gefið þér sér gjöf af því ég á ek penge eins og þú veist. hehe !


hér er ein gömul og góð síðan á fermingunni minni haha :)

Því miður get ég samt ekki sett neina almennilega mynd af henni hérna af því myndasíðan min er biluð og ég kann ekki að gera nýja.

En síðustu dagar eru bara buin að vera próf. bara eitt eftir samt, vá hvað það verður gott þegar það er búið ! svo er bara skólaferðalag eða måskee ?
fór bara í afmæli til Hauks í gær, til hamingju með daginn fyrir löngu Haukur ;* hehe en já ætla að fá mér að borða nuna, leiðinlegt að vera félagsskítur í tölvunni að blogga í afmæli hjá systir sinni !

bless !


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 18:37:19 / smokkfiskur

sjúbabbsjúbabbabbababb

Samræmdu búin :D loksins ! gekk ekkert vel :/ !
Eftir stærðfræðiprófið var farið með okkur í óvissuferð sem var fín. Lærðum að dansa, fórum út að borða tvisvar. Svo á flugvöllinn og þar var logið af okkur að við ætluðum til grænlands, en svo fórum við bara uppá kaldbak með snjótroðurum og renndum okkur svo niður, íkt fjör. Enduðum svo á grenivík þar sem við gistum og fórum í leiki og e-d skemmtilegt :) nenni ek að segja frá þessu svona 100% þannig þið fáið þetta bara svona.

Á fimmtudaginn þegar við komum heim þá fór ég beint að passa Natalíu Elskuna mina ;*   hehe við elskum trampólín :D. En já, hún var nefnilega veik og fór ek í leikskólann, þannig við dunduðum okkur saman þarna þangað til Þórunn kom heim. Svo um svona fjögur fimm leitið bað Þórunn mig að koma með sér suður og við lögðum á stað suður um níu leitið. Fengum bíl hjá Toyota og komum svo norður aftur á föstudagskvöldið með Tomma minum ;*. Geggjað fjör á leiðinni hjá okkur. Ég keypti mér bikini í Rvk. bleikt og blátt hagkaups. Ógsl töff 8).
Og til hamingju með daginn Elfa á föstudaginn ;* 

Laugardagurinn, vaknaði klukkan fimm af því það var ek látið mig vita að það væri buið að fresta kennaravakningunni ! En sem betur fer hringdi ég í Lilju og þá sagði hun mér að það væri buið að fresta henni. Þannig ég hélt áfram að sofa bara. Vaknaði klukkan ellefu og fékk mér að borða og vakti Tomma og við fórum út á trampólín og svo komu Diddi, Sveppi, Maggi og Arndís og við vorum öll að hoppa eitthvað ásamt Maríönnu litlu diddu og Heiðdísi frænku ;*. Svo fórum við í ljós og svona, svo lá leiðin bara til Magga og Arndísar í mat. Dírindis máltíð sem við fengum þar, nema hvað að mér var svo illt í maganum að ég gat lítið borðað. Um kvöldið vorum við bara á hótelherberginu hjá Sveppa&Didda, ég, Tommi, Kolla, Maggi, Arndís og auvðitað þeir tveir, fórum svo í bæinn e-d smá og ég og Tommi fórum bara á rúntinn með Ingu Dís, Ástu og Atla beibí ;* takk fyrir rúntinn. Svo bara heim að sofa.

Sunnudagurinn, vaknaði ég ellefu til að fara á æfingu, en þá var bara svo slæm mæting að við vorum tvær úr þriðja flokki þarna ásamt nokkrum í fjórða flokk. Leiðinleg hálftíma æfing ! Fór bara heim og þá var Tommi vaknaður bara og buinn að taka til í herberginu okkar ;* þessi elska alveg dírmæt. Náðum svo í bílinn hans Tomma og fórum á subway og svo í sund á þelamörk og tókum Didda og Natalí með okkur, síðan bara Brynja. mm:). Svo átti ég að mæta á æfingu hálf sex með meistaraflokk, mætti niður í boga en þá var allt læst. Svo ég sendi ég þjálfaranum sms hvort væri ek æfing? en þá var hun bara frammá Hrafnagili, og ég ek látin vita af því. frábært! þannig ég komst ek á hana. Tommi fór heim og ég sit hér að blogga á meðan ég jafna mig á djúpum sökknuði og naga neglurnar. Er farin í mat til Þórunnar.

Bless.


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 22:47:40 / smokkfiskur

akkúratt

ahh tvö próf buin og tvö eftir, bara danska og stæ. Ætti nu alveg að geta dönskuna þó maður sé ek að hafa neitt fyrir því að vera að læra mikið :S skil ek hvað ég er róleg á þessu, ég sem hef alltaf verið með svo mikinn prófkvíða.. ek til kvíði í mér nuna :D gott það. En allavega hafa tvö prófin sem eru buin verið að gera útaf við mig :S fannst þau hræðilega erfið sérstaklega enskan ! ég náttúrulega er lika svo ægilegur enskuséni ?!

allavega var ég að finna dulítið hérna á netinu hahaha :D nokkrar góðar eldgamlar myndir !
þessi er alltaf góð hahaha :)

 og þessi af Evuelsku :*

haha góðar þessar. Það eru lika helling af fleirum, þær koma kannski seinna, nenni ekki að hafa þetta e-d myndablogg :)

allavega ætla ég að fara að sofa, er dulítið þreytt á því að vaka svona lengi. Ekki vön því !

Pæling: Er hafragrautur hægðalosandi ?

jæja kærlig hilsen .. svona af því ég er að fara í dönsku próf á morgn ;*


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 21:07:07 / smokkfiskur

einmitt

hef bara ekkert að gera þannig ég ákvað bara að skella inn einu bloggi hehe :) á að vera að læra undir samræmdu en það er nu eitthvað að fara i aðra átt :o :) sem er reyndar bara fint af því ef ég læri og læri og bræði bara ur mer heilann þá verð ég bara strassuð :P þannig þar sem er ekki til stress hjá mér í þetta skipti þá ætla ég ek að fara að skemma það með því að læra eins og mfokker :D

allavega þá bara veit ég ek hvort ég á að vera að byrja með síðuna aftur ? :S vildi samt bara koma með eitt svona stutt til að hafa e-d að gera hehe :) kannski að ég byrji bara aftur til að hafa e-d að gera á daginn annað en að sitja fyrir framan tölvuna og horfa á skjáinn .. þust bara á desktopið.. eða vera á minu öðru heimili sem er menntaskólinn í þetta skipti :P og Tomma hús :D ;* mm :D en já gott að lífið er glatt ;P

ég er mikið að spá í að flytja suður í haust ef Tommi flytur ek norður :o veit samt ek hvað ég geri :S ég er svo límd við ma og pa að ég fæ heimþrá held ég :( een ég er stór stelpa ekki satt :P æjjh þetta verður ákveðið síðar :D ætla að huxa bara um einn dag í einu þessa dagana :) nema bara útlandaferðin er eftir hvað ? mánuð sirkabát ;) úú fjör :D

jæja segi þetta gott her .. :)
vonandi að þið lesið þetta svona smá tilbr ;*

átnowforeverorvhat? ;*

en eitt :) nennir einhver með mér út að hlaupa fyrir prófið á morgun ? :P


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 19:26:26 / smokkfiskur

Lokablogg !

Vildi bara koma með eitt svona lokablogg aðeins til að segja frá líðan mínum :) ekki til að kvarta í ykkur samt um hvað mér líður illa eða eitthvað þannig, heldur bara svona eitthvað annað :D ætlaði að fara suður um helgina en hef ekki far til baka og er orðin veik þannig ég treysti mér ekki að sitja í bíl svona lengi eða fljúga :S þannig þessi helgi verður muuuun verri en allar aðrar helgar :!: enginn Tommi þessa helgi :( bara mamma og pabbi ? :$ ömurlegt ? maður verður bara að fara að sofa snemma, læra eða eitthvað til að stytta ser stundir :) okeeei ! svo bara suður næstu helgi :D í fermingu hja Heiðdísi minni elsku ;** hlakka svo til að sjá hana ;) ;* svo bara heiriði kannski aldrei í mér aftur :) er að verða brjál bara =) er mikið að spá í að flytja bara suður í sumar til að geta verið hja því sem ég á bara :D ohh en erfið ákvörðun samt :o allt tekur sinn tíma ;* en kveð hér í þessu lokabloggi ? kannski að eilífu .. eða byrja kannski ef ég þarf að tjá mig eitthvað ægilega ? :) eða nei kannski ? sjáum til bara :D

tvær myndir hérna í lokin ;)

                                                                  

                                        frabært haha <3

áát forever ?


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 21:31:32 / smokkfiskur

Hætt ....

HÆTT ... kannski í bili eða bara að eilífu ;') ? ;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 17:16:43 / smokkfiskur

Myndir:)

Er ekki buin að standa mig neitt i þessu bloggi :o en nokkrar ástæður eru fyrir því ;) júú ! nenni því bara ekki :P svo er aldrei neitt að blogga um ? :D

En Árshátíðin búin :) væri alveg til í aðra Árshátíð áður en skólinn verður búinn :D þetta var ekkert smáá gaman sko :lol: gaman að leika í leikritinu lika :D ooh þetta var bara allt æðislegt ;) mistuð af miklu ef þið komuð ekki á ballið :) og teknar voru nokkrar myndir þarna líka, þær eru komnar hérna inn ásamt myndum úr Afmælinu hjá Karen og Sella ;* En þau til hamingju með að hafa átt afmæli :) og svo nokkrar myndir af Natalíu Nótt sem ég varð að hafa með ;* . Til hamingju líka þið sem fenguð verðlaun á Árshátíðinni ;* nenni samt ekki að telja upp hverjir það voru, held að það sé búið að á nokkuð mörgum síðum þannig að þið eruð væntanlega buin að fá að vita hverjir það eru :D svo eru lika á eiginlega á öllum síðum myndir frá Árshátíðinni ef þið viljið skoða meira :) leitið bara á síðunum sem eru hér til hliðar í *aðrar síður* eða eitthvað þannig ;) eitthvað er á Evu síðu og hja sóðabrókunum og Elfu og Maríu :) svo á fullt annars staðar ;) þetta er bara svona helsta sem ég man =)
Fór svo bara í afmælið til Karen&Sella á laugardeginum :) þetta var bara aðalega svona tjill :D een samt mjöög fínt ;* horfðum á sönvakeppnina og svona :D auvðitað vann Silvía Nótt ;* hun rústar þessu öllu maður :D ? .. svoo teknar myndir þar eins og ég sagði frá áðan :D skrautlegar myndir ? :) endilega bara skoða ;) Sunnudagurinn bara rólegur :D æfing tólf til eitt svo bara heima hálf lasin :$ ægilega gaman :) alltaf lasin núna ég :S skil þetta ekki :o ég sem varð aldrei lasin ! en só :) ...

Svo eru bara eitthvað sko mánuður eftir í kennsludögum eða eitthvað :S þannig það er eins gott að fara að taka sig á ef maður ætlar í einhver samræmd próf :o eenh þetta verður ekkert mál ? :D jákvæðni gerir allt betra ? :) hehe .. en ég ætla að drífa mig í að fara að læra :klikk:

-bæ ;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 15:20:24 / smokkfiskur

??

langt síðan síðast :) svo eg er að spá að koma bara með eitt heitt sko ;) hvort það verður heitt er samt spurning ? :o er bara buin að vera að hitta Tomma síðustu helgar (: og svona :D fór lika á laugamót í byrjun febrúar :) mitt lið vann það bæ ðe vei :) fínasta mót bara ;) komnar myndir frá því hér neðar :haha: og fleyru :D

svo er bara skólinn buinn að vera fínn þessa viku :) ekkert buið að vera að læra nánast vegna árshátíðar ;) sem er á morgun og á föstudaginn er svo unglingaárshátíðin og ball :) opið ball allir að mæta þangað ? ;) sjöhundruð inn :D byrjar klukkan níu ;) ,,, snirtilegur klæðnaður er skilda ! 

Svo bara Samfés eftir tvær og hálfa viku :D ætla ekki allir þangað ? :) allavega fer ég þá suður á þriðjudeginum tuttugusta og áttunda :) útaf það er frí í skólanum á mið, fim, fös og svo helgin natturulega :D æðislega næs sko ;) een ég hitti væntanlega Tomma ekki firr en þá :cry: sjaldgæft að þetta sé svona langur tími sem líður og því erfitt að upplifa það :( .... uhh :) voðalega er þetta eitthvað tilgangslaust blogg :S eg hef aldrei neitt að tala um :/

held að ég segi þetta bara gott þá (: minni enn og einu sinni á að það er komið myndir og mánaðarins ;) endilega skoða og kvitta auðvitað ;**


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:30:51 / smokkfiskur

bla bla

Myndir í bráð krakkar:D blogga líka þá ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 22:03:13 / smokkfiskur

sjitt :)

Blogg:D ? okeei ég hef eekkert að gera :P þannig ég ætla bara að blogga smávegis:) en um hvað ? :$ það verður bara að koma í ljós :o einmitt næstu helgi ætla ég sko í ljós á íbísa 8| fokk já :D það er svoo best að fara þar :D en só vott sko:S jáh :D
á fimmtudaginn er ég að fara suður :D úff hlakka svo til :) það verður mergjað :) hahh ljótt orð :P ? allavega þá er systir min að fara á Reyki á morgun :( öfunda hana dulítið :o :D en það verður fínt :) okeeeei ;)

Helgin ?
frekar róleg og leiðinleg sko :) á föstudagskvöldið var ég heima að bíða eftir að nenna að fara að sofa aaaallt kvöldið :) nema að Sóley var hja mér til svona níu :D og síðan bara var ég að bíða :) en svo bara var ég í tölvunni og lá inni í rúmi og bara steeeeinsofnaði allt í einu um svona tólf leitið :o utroligt næs bara :D en já vaknaði svo um ellefu útaf mamma vakti mig og ég þurfti að fara að vinna með Þórunni uppi i menntó :) það var bara voða fínt sko :D þjéna sér smá penge :D þéna ?  okei .. hahh :)
laugardagskvöldið var frekar afslappað í afmæli hjá Tinnu ;* til hamingju með daginn um daginn Tinna min ;* .. horfðum bara á vídjó og spjölluðum :D fínt ;) svo fór ég bara heim að sofa :) vaknaði síðan við ekki mjög góða huxun eða draum eða eitthvað klukkan hálf ellefu í morgun 8| frekar snemmt :S en rauk allavega á lappir og bara snérist í hringi eða eitthvað því um líkt :P hahha þetta var samt bara draumur :) :$ ? okeei sóó með það sko !
en okei :) vildi bara skella einu bloggi á hérna :) vonandi að það sé innihaldsríkt og skemmtilegt ? :) hehh


Er einhver búinn að sjá The fog .. hvernig er hún ? :D

okei hveð í bili :D endilega skiljið eftir ykkur skilaboð ;) ;*

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 13:25:06 / smokkfiskur

blogg ?

okei fólk er að byðja um blogg hér ? :) hef samt ekkert að blogga um eiginlega :S en jæja :D ætla bara að reyna að fá mömmu til að leifa mér að fara suður :o hun er ekki alveg að sætta sig við það útaf pabbi er sko að fara suður að vinna og eitthvað vesen :( een við ætlum nu að reyna að fara suður ekki þessa heldur næstu helgi :D:D eða sko mamma og pabbi og ég og maríanna :D úúh :P ætli það verði þá hægt að fá þau með sér smá í kringluna ? :$ hehh :D ohh vonandi ;) allavega :D þá bara veit ég ekki neitt hvað ég á að segja:D nema kannski er ég og mamma og pabbi og maríanna og tommi og þórunn og helgi og natalía að fara til BENIDORM í sumar :D til að nota gjafabréfið sem maríanna vann ;):lol: úúú viil það svoo mikiiiiiiið sko :) en já ekkert ákveðið samt :( maður bara vonar það besta :D allavega hef ég ekkert að segja samt :S en ætla að gera svona úreltar spurningar :D hehe

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kissa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

 

;) ;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3